Örlítil gleði í hjarta gerir alla daga bjarta!
Myndir.
08.12.2005 08:55:48 / radical

Jolin

Tha verd eg skotinn a stadnum! Hong Kong mundi henda mer i aefilangt fangelsi en Taevan drepur. Sorry kagl, sendu mer frekar hass.

» 12 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 01:07:01 / radical2

Pisst...

Hey, þú! Ekki segja neinum en ég sendi Danna kókaín í poka í jólagjöf. Það er allt í lagi að ég segi það hér því það fer enginn inn á þessa síðu lengur. En núna verður hann rekinnn úr landi í Kína og kemur aftur heim til mín!!! Húrra. Ég er snillingur.

» 12 hafa sagt sína skoðun

17.08.2005 17:44:02 / radical

Hong Kong

Ég er að fara á morgun sem skiptinemi til Hong Kong og hálsinn minn er farinn að þrengjast af stressi og ógeði.
Auðvitað þarf ég að redda mér einhverju skiptinema blogi, set link á það hingað inn.
Kannski að maður geri Radical að fyrstu opnu blogsíðunni þar sem allir stjórna...
Böns af hlutum sem ég skil eftir ókláraða og ég mun taka upp saumana þegar ég kem aftur til landsins, eftir ár.
Núna bíður mín ár, af fjöri og hórdómi, sem ég mun brosa framan í og reyna að skemmta mér á.
Ef ég náði ekki að hitta ykkur áður en ég fór þá vildi ég bara segja bless og takk fyrir allt saman og sjáumst að ári liðnu.


» 20 hafa sagt sína skoðun

24.06.2005 01:52:21 / radical

ný síða

Þessi síða var lengi búin að vera að síga niður til andskotans og það var gott að hún hætti. Elías er kominn með nýtt blog og ég ætla að gera það sama!
Langar að elta hópinn og fara á blogspot en það kemur í ljós á næstunni.

» 94 hafa sagt sína skoðun

20.06.2005 00:51:44 / radical2

Lokað!!

Farðu af þessari síðu! Hún er lokuð. Radical er lokað um óákveðinn tíma

Farið frekar að heimsækja H.r. Þrumukisa. En hann býr einmitt hér: www.thethundercat.blogspot.com

Farið og segið hæ. Loppa hans er rafmögnuð og mjúk. Eins og heitur kaffibolli á köldum vetrar morgni. Eða heit peysa á vondum haust degi. Eða volgt rúm þegar heimurinn er vondur við mann. Þannig er H.r. Þrumukisi. Pedro í Napoleon Dynamite hafði þetta að segja um hann: ,,If you visit The Thundercat he will make all you´re dreams come true."

Þarf að segja meira.



» 13 hafa sagt sína skoðun

16.06.2005 14:39:18 / radical

Beyglan

jæja... ég er hugsanlega að byrja að skrifa fyrir www.beygla.is . Ekki það að ég hafi einhvern svakalegan áhuga á þessari síðu heldur að þeir ætla að borga í bjór eða pening, hvað getur maður beðið um annað?
Þetta þýðir auðvitað ekki að ég sé að hætta í Radical, auðvitað ekki! heldur er ég bara að láta vita af  hugsanlegum gleðitíðindum.  
Nýjasta greinin í "spes" flokkinum er eftir mig, húrra?

http://www.beygla.is/fullnews.php?id=155&table=news4


» 150 hafa sagt sína skoðun

14.06.2005 21:03:00 / radical

Helförin

Ég er að bíða eftir fari, ber að ofan.
     Bíllinn, eins og tveggja mánaða gömul mygla úr sveskju, rennur eftir götunni í átt að heimilinu mínu.
Er ég  spenntur? nei, ég held alltaf kúlinu.


» 82 hafa sagt sína skoðun

12.06.2005 23:35:45 / radical2

Nei, nei.

Ég get ekki hætt mér langar að blogga meira. En ég vil það ekki. Vil ekki virka eins og ég hafi ekkert að gera. Því ég hef það alveg. Í alvöru. Ég fór í sund í dag. Þetta er fjórða bloggið mitt á einu sólarhring. Er ég blogg fíkill?

Hvar er sverðið sem hjó?
Hvar er eldurinn sem brann?
Hvar er sagan sem var sögð?
Hvar er grasið sem spratt?
Hvar er bjallan sem glumdi?
Hvar er elífðin?
Hvar er Danni?

» 11 hafa sagt sína skoðun

12.06.2005 23:10:08 / radical2

Muniði eftir......?

Muniði eftir Mario Bros þáttunum á stöð tvö? Ég geri það. Hann var svona blanda milli sitcom þáttar og teiknimyndar. Þar sem stundum horfði maður á skemmtilegar litríkar myndir af Mario að éta sveppi og verða sterkur og svo líka tvo gaura sem bjuggu í kjallara íbúð og röðuðu inn bröndurum um pizzur, pípulangnir og hvað svo meira sem þeir höfðu áhuga á. Ég og nokkrir drengir spjölluðum um þetta í dag og þá er það alvarlega svöl pæling að hafa upp á þessum þáttum í dag og sjá hvort þessir brandarar sem maður skildi varla neitt í séu virkilega eitthvað fyndnir. Er þetta kannski bara eðal gamanefni? Ja, nú veit ég ekki.

Muniði eftir Turtles þáttunum sem voru einnig á stöð eitt? Ég geri það. Ég tók þá alla upp hjá ömmu minni. Þetta var algjört möst. Að vakna á laugardagsmorgnum og horfa á stöð eitt á meðan vídjóið horfði á stöð tvo og sagði mér svo frá því sem gerðist þar. Allavega fyrir þá sem ekki muna eða vita hvaða þættir þetta eru þá eru þetta ,,basicly" þættir um fjórar stökkbreyttar skjaldbökur sem eru að vernda heiminn fyrir ógeðslegum heila og grímuklædda þjóninum hans. Frekar fyndin pæling. Þessar skjaldbökur eru allar skírðar í höfuðið á frægum listamönnum. Heita þær; Leonardo, Michelangelo, Rafael og Donatello. Þær eru súper góðar bardaga ninjur og finnst ekkert betra en pizzur(fyndið hvað mikið af 90´s barnaefni snýst um pizzur, ég held að hér sé verið að búa til neytendur, sem getur kannski skýrt pizzu æði Íslendinga, lítið bara á Dominos og megavikuna) og að berjast. Þær eiga svo ,,mentor" sem er risavaxin rotta, sem ég man ekki hvað heitir. Þær eiga svo vinkonu sem er fréttakona og er alltaf að hjálpa þeim úr ýmsu klandri. Þetta er eitthvað sem ég fann á dc og er nú að niðurhala í gríð og erg.

Svo er það Skot á mark(eða að er ég nokkrun veginn viss um að hann heitir, endilega leiðréttið ef það er rangt) sem fjallaði um hálf Brasilískann, hálf Ítalskann fótbolta snilling sem spilar á Ítalíu. Nafn hans man ég ekki. En ég veit að hann átti til eitt dúndur skot, sem hét Arnarskotið. Það var þannig að hann setti löppina lóðrétt upp í loft og skaut svo af fullum krafti. Klikkaði ekki, nema þegar hann lenti á eitthverjum ofurmarkverði í einum ,,seasonfinale". Þetta voru góðir þættir. Hann átti líka kærustu sem var ballerína en ég held samt að þau hafi aldrei kysst í öllum þessum þáttum(ég bara held það). Þetta langar mig líka til að sjá aftur.

Loks er það þáttur sem ég elskaði þegar ég var yngri. Man samt eigilega mjög lítið eftir honum. En hann hét Hlöðver grís(eða álíka). Það var þáttur sem snérist um svín sem dreymdi mjög hressa og skemmtilega drauma um hitt og þetta. Man samt ekkert nánar. En ég gleymi samt aldrei titil laginu:

Hvað dreymdi þig í nótt? Hlöðver grís
Onk, onk.
Hvað dreymdi þig í nótt Hlöðver grís.
Onk, onk

Eða jú ég gleymdi því, nema þetta sem er komið hérna fyrir ofan. Crazy.

En já takk fyrir mig. Kv. Elías frá Granda.

» 13 hafa sagt sína skoðun

12.06.2005 13:19:19 / radical2

Góðann daginn.

Jæja krakkar. Þá er helgin bara að renna út. hún er búin að vera einstaklega skemmtileg, en voða lítið frásögu færandi. Verð samt að nefna það að ég fór í fyrsta skiptið á Opus á föstudaginn og ég held ég fari ekki þangað aftur. Þetta er án efa súrasti skemmtistaður sem ég hef komið inn á. Þar inni er ótrúlega mikið af ungum stúlkum(í svona 15- flokknum) að mellast eins og þær hafi lífið að leysa. Dansarnir þarna minna mig bara á mynd sem ég sá einu sinni og heitir High School High, ömurleg mynd.

En já þetta er sum sé bloggið sem slær Danna minn af kortinu því nú á hann ekkert blogg á síðunni. Alvarleg pæling að springa annað ef þetta heldur sem frá horfir. Danni bloggaðu nú ástin. Fólkið er að verða leitt á mér.

» 88 hafa sagt sína skoðun

12.06.2005 06:45:51 / radical2

Obbobobb.

Jæja, þá er maður kominn heim. Það er alltaf gaman á djamminu. Sérstaklega þegar Trabant rokka húsið. Elska þá. Þeir eru án efa besta íslenska hljómsveitin í dag. Ég elska þá. Vonandi elska þeir mig líka. En allavega dúllurnar mínar ég er pínu fullur svo ég er að spá í að horfa á einn Lost þátt. Later gamla fólk.

» 90 hafa sagt sína skoðun

10.06.2005 20:49:54 / radical2

...

Ég held ég fari bara út.


Ég elska þessar fáu hræður sem enn lesa þessa síðu.

» 12 hafa sagt sína skoðun

10.06.2005 01:30:30 / radical2

Rím í grín.

Fyndið að alltaf. Það bregst ekki þegar fólk reynir að ríma við mitt mjög furðulega nafn, þá koma orðin Elli: sprelli, eða Elías: pelías. Er svona pínu að ná orðinu sprelli þar sem það getur bæði þýtt; sprellinn gaur eða typpi. En pelías skil ég ekki. Það er bara nafnið mitt með p-i fyrir framan. Eins ég væri að segja pDanni ef ég ætlaði að ríma við nafnið hans. Haha, Danni, pDanni. En þegar ég heyri þetta sé ég alltaf fyrir mér risastórann pela með andlitið mitt. Skondið? Ha?

Einnig vil ég koma á framfæri kækjunum mínum. Ég er með nokkra. Einn sem ég var með en bara þegar ég tala við Völu(eða það vona ég). En hann er frekar pirrandi hann er þannig að ég segi skiluru eftir að ég er búinn að segja eitthvað. Og ég endurtek það þangað til svar næst. Biðst forláts ef ég geri þetta við eitthvern annan. Ömurlegt.
Hinn er þannig að alltaf þegar ég færi höndina mína úr eitthverri stöðu eða aðgerð sný ég úlliðnum í kring og smellir þá í henni. Svo braka ég í puttunum mínum. Fyndið er að enginn hefur myndst á þetta við mig. Sagði samt Heru þetta um daginn. Henni þótti þetta fyndið. Mjög hommalegt(no offence). Á mig verkjar í úlliðinn.

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.06.2005 18:11:42 / radical2

Á gaddinn....

Vá. litli bróðir minn sem er núna ,,pushing 4" á einn uppáhaldsvin sem er farinn að búa inn á okkur. Er það svo sem ekkert merkilegt að litlir drengir séu mikið saman. Man meira segja eftir því þegar ég bjó í Breiðholtinu og ég og Jóel vorum saman alla daga. Man meira að segja eftir því í 1. bekk þegar ég lappaði fyrir utan hjá honum fyrir skóla og beið eftir að hann kæmi út. Hann kom aldrei. Eftir svona 2 tíma kom mamma hans og sagði að hann væri löngu farinn í skólann. Hún keyrði mig svo í skólann. Fyndið hvað maður var þolinnmóður í gamla daga. En allavega ef þetta var ekki alveg fáránlegur útúrdúr þá veit ég ekki hvað.

...En já vinur bróðir míns heitir Óðinn og er það alveg yndislegt að sjá hvernig bróðir minn glóir allur þegar hann er í heimsókn. Vildi að hann væri þannig þegar ég kem til hans. Ég fæ bara skammir eins og ,,Elli kúkalabbi, Elli knelli, mátt ekki koma inn til mín(sem er allstaðar nema inni hjá mér). En málið með þennan litla dude er að hann er alveg spikfeitur. Einn af þessari nýju hamborgarakynslóð. Svo hann gerir lítið annað en að éta. satt best að segja er þetta farið að fara nett í taugarnar á mér að það sé aldrei til skyr, cherrios, brauð, sulta, pulsur, ostur, smjör né epli af því að spekfeitur 4 ára gaur er að éta allann matinn minn. Síðan kem ég heim áðan klukkan var svona 10 min í sex og hvað haldið þið? Hann er að éta skyr og segir svo þegar hann er búinn ,,má ég fá meira" þá þurfti mamma að segja ,,nei, heyrðu það er að koma kvöldmatur. Þú færð að borða heima hjá þér."

En já hann er samt fyndinn gaur. Er samt að spá allir í fjölskyldunni hans eru líka alveg spekfeitir er það vegna matarræðis eða eru það genin? Ég held að það sé ekki hægt að velja annað hvort. Samblanda af báðu segi ég. En ef ég væri Major Pain þá myndi þetta piggy ekki fá búðing í kvöld.

» 14 hafa sagt sína skoðun

08.06.2005 17:42:38 / radical2

Forvarnir.

Ég var að spá muniði eftir því þegar það voru forvarnir í grunnskóla? Þá var verið að vara mann við allskonar hlutum eins og eiturlyfjum, einelti, tannpínu, samræmduprófunum, kynlífi og eigilega bara öllu sem er með sérhljóða sem annan staf. Allavega þá man ég hvernig allt var gert til að hafa þetta gagnlegt en jafnframt að hafa þetta skemmtilegt, gekk það oft með misjöfnum árangri. Ég man sérstaklega eftir leiðinlegu tannverndar konunni. Hún var leiðinleg. Ég náði engu sambandi við hana. Hún bara jappaði eitthvað ótrúlega ó áhugavert og svo kom hún með eitthvern karíus og baktus brandara sem töffari í 8unda bekk vill ekkert heyra. Síðan smellti hún myndum af eitthverjum ógeðslegum tönnum með fylgjandi ,,ojj" frá áhorfendunum. Ég vissi samt alveg jafn lítið um tannskemdir og áður

 En svo man ég líka eftir eiturlyfja fólkinu. Það var sko kúl. Það kom lögga í ,,uniformi" og okkur var svo sýnd fræðslu/heimildamynd sem sýndi gamla eiturlyfjafíkla tala um vandamál sín og hvað þau hafi þurft að ganga í gegnum til að redda sér efnum og hversu mikið helvíti fíkniefnin eru. Þar tók ég sko eftir. Hvað er svo niðurstaðan? Ég hef aldrei prófað neitt harðara en áfengi og ég er engann veginn á þeim buxunum að ég þurfi að prófa þetta. En svo aftur á móti þá er ég með tannpínu. Djöfull er það ömurlegt. Ég er viss um að ef tannfræðslukonan hefði verið geðveikt hress og spennandi karakter. Komið með svona myndband þar sem talað er við fólk sem er búið að missa allar tennurnar og það látið segja af hverju og hvort það sjái ekki eftir þessu. Jafn vel ef það brotnar niður og kvartar undan einelti vegna tannana, þá hefði ég fylgst með og kannski væri ég ekki með tannpínu núna.

P.s. Hver man ekki efit flúorinu í skólum? Ég man að ég kvartaði alltaf og kveinaði yfir að taka það en bara vegna þess að við áttum að gera það. Ekki vegna þess að það væri ógeðslegt.

» 15 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20